EUROVISION 2025

Aðdragandi reglugerðar

Kæru félagar, árið 2019 lögðumst við saman í leiðangur. Ferðalag með það að markmiði að styrkja vinabönd okkar og gera viðburði sem annars væri í besta falli miðlungs dægradvöl að stórskemmtun og hátíð. Árið 2019 sköpuðum við í sameiningu drykkjuleik vegna Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva (Hér eftir Eurovision). Leikurinn vakti mikla lukku innan sem utan hópsins og því er ekkert því til fyrirstöðu en að endurtaka leikinn í nýju og bættu formi.

Árið 2020 var leikurinn endurgerður og varð fullkomnari fyrir vikið, aukið lýðræði var í ákvarðanatöku reglugerðarinnar og vakti sá leikur enn meiri lukku en sá fyrri. Hér er því ekki um miklar breytingar að ræða sökum þess hversu vel gekk árið 2021 fyrir utan að bæst hefur í hóp þáttakenda og þ.a.l. er regluverkið umfangsmeira en þó hefur verið ráðist í nokkrar aðgerðir til að einfalda leikinn.

Markmið breytinga 2024

Reglur leiksins voru orðnar þungar og miklar sem dró úr skemmtanagildi leiksins ásamt því að hindra innkomu nýrra aðila í leikinn. Nú má búast við fleiri gestum en áður sem undirritaðir taka fagnandi. Því var, í aðdraganda keppninnar 2024, ráðist í umfangsmikla endurskoðun á regluverki til einföldunnar til þess að auðvelda innkomu nýrra aðila. Þó ber að hafa í huga að reglur um einstaklinga eiga enn við um þá fjóra helstu sem hönnuðu leikinn frá grunni, Cafe Tyrol (hér eftir CT).

Formáli - uppfært 2024

Keppni ársins er undarleg fyrir margar sakir en þó ber helst að nefna ástandið á Gaza svæðinu og þjóðarmorð Ísraela á Palestínumönnum sem ekki verða útlistuð nánar hér en þátttakendum er bent á að kynna sér ástandið þar. Mikil umræða myndaðist meðal hópsins um hvort undirritaðir ætluðu sér yfir höfuð að horfa á keppnina sökum þátttöku Ísraels í keppninni. Keppni sem segist vera ópólitísk og bannar fána Palestínu á þeim grundvelli er langt því frá að vera ópólitísk.

Ákvörðunin um að horfa er þung en til þess að sýna stuðning og leggja okkar að mörkum verður slökkt á keppninni um leið og Ísrael birtist á skjánum og ekki kveikt aftur fyrr en öruggt verður að atriði þeirra sé lokið. Ásamt því er hvatt til þess að styrkja neyðarsöfnun Íslands - Palestínu sem finna má hér: palestina.is

Sökum graf alvarlegs ástands í Palestínu verða engar reglur tengdar því í ár og undirritaðir vona að á næsta ári muni Ísrael vera meinuð þátttaka og að stríðinu á Gaza ströndinni muni ljúka. Þessar forsendur eru mikilvægar og er æskilegt að allir þátttakendur kynni sér vel aðstæður áður en þátttaka hefst.

Við vinnslu á leiknum var notast við hefðbundna drykkjuleiki sem og þætti úr dægurmenningu, borðspilum og stjórnmálum. Drykkjuleiknum er skipt í þrjá flokka sem allir kveða á um mismunandi þætti keppninnar. Fyrsti liðurinn inniheldur þætti sem eiga sér stað í keppninni sjálfri, þ.e. þegar atriði eru flutt, þegar kynnar tala hvort sem þeir eru íslenskir eða frá því landi sem keppnin er haldin hverju sinni og þætti sem þátttakendur í drykkjuleiknum hafa um mál líðandi stundar að segja. Liður tvö inniheldur þætti tengda stigagjöfinni og skemmtiatriðum. Í stigagjöfinni verður farið eftir spá helstu veðbanka veraldarinnar og verða þar þau 10 ríki sem efst eru í veðbönkunum, að undanskildu Íslandi og þeim sem stunda þjóðarmorð, sett í pott og hver og einn þátttakandi dregur einungis eitt ríki sem verður hans ríki það sem eftir varir keppni. Hlekkur á samantekt veðbanka má finna hér. Í stigagjöfinni eru gefin 1-8 stig, 10 stig og 12 stig. Til þess að einfalda reglurnar og koma í veg fyrir alvarlega ölvun og hugsanlega nýrnabilun þá mun ekki þurfa að neyta áfengis fyrir hvert stig, betur verður farið út í fyrirkomulagið í lið tvö. Liður þrjú inniheldur að lokum sérúrræði fyrir hvern staðfestan þáttakanda drykkjuleiksins sem listaðir verða hér að neðan. Sérákvæði sem einkenna persónuleika hvers og eins og hvetja þ.a.l. til aukinnar drykkju. Það er í hlut hvers og eins þátttakanda að kynna sér vel reglur sem eiga við viðkomandi og fylgja þeim af kostgæfni. Hver sér um að skaffa sínar eigin veigar og er almennt mælt með því að þáttakendur spari aurinn og kaupi fremur ódýran bjór þar sem mikið verður drukkið ásamt því að dýrari bjórar eiga það til að innihalda hlutfallslega meira magn af alkóhóli. Að lokum vill undirritaður þakka fyrir samveruna, óska ykkur velfarnaðar, góðrar skemmtunar og heilbrigðar sálar. Með von um að þið getið notið kvöldsins lýkur þessum inngangi sem fyrr með kvæði Tryggva Magnússonar.

Látum strákar staupin ganga,
styrkjum andans þol.
Drekkum ákaft ölið stranga.
Engin handaskol!

Kafli I – Á meðan keppni stendur

1 sopi

2 sopar

3 sopar

Þamba

HJÓLIÐ

Keppandi má undir hvaða kringumstæðum sem er óska þess að fara í Cafe Tyrol official wheel of happiness and drinking (hér eftir Hjólið). Þó er óheimilt að fara í Hjólið tvisvar í röð, þ.e.a.s. annar keppandi verður að hafa farið í Hjólið áður en farið er aftur í Hjólið.

Þegar landið sem keppandi dró stígur á svið skal keppandi snúa hjólinu. Skylda er fyrir alla þátttakendur keppninnar að fara í Hjólið a.m.k. einu sinni að undanskildu því skipti sem land viðkomandi stígur á svið.

Kafli II – Stigagjöfin

1 sopi

2 sopar

3 sopar

Þamba

Þamba tvo bjóra

Kafli III – Um þáttakendur leiksins

Allir sem mæta þurfa að semja hið minnsta eina reglu um sjálfan sig í hverjum lið hér að neðan.

1 sopi

CHUGGA / HJÓLIÐ (einu sinni per keppni)

Skýringar

1 Gísli Marteinn hefur alla jafna sinnt þessu hlutverki með stakri prýði en í ár (2024) verður nafni hans skipt út fyrir “Íslenskur þulur” (Sennilega er það betra til framdráttar, gefur reglum tímalaust gildi)

2 Kynhneigð ekki tekin með því þetta er Eurovision. Dæmi: Svartur Svíi, múslimi frá Króatíu eða annað þess háttar.

3 Hér væri ágætt að hafa landakort til hliðsjónar

4 https://en.wikipedia.org/wiki/List_of_wars_involving_France

Nágrannaríki í Evrópu

Veðbankaspá

Skoða veðbankaspá á Eurovisionworld.com